Britney Spears tók sé langþráð frí frá dómarastörfum í The X Factor þann 4. júlí eða sjálfan þjóðhátíðardag Bandaríkjanna.
Hún gaf sér þó tíma til að skella einni mynd af sér og drengjunum sínum á sundfötunum inn á Twitter og tísti einnig að hún væri að fara að skella sér í sundlaugina og að það væri svaka fjör hjá þeim.
Britney dvelur nú á eyjunni Maui með unnustanum Jason og drengjunum hennar Sean og Jayden sem hún á með Kevin Federline. Tilvonandi brúðhjónin skemmtu sér konunglega í ferðinni og nutu sólarinnar og strandlífsins í botn með drengjum hennar.
Britney er svo sannarlega komin í sitt gamla form eins og sést á myndunum og vonandi er “gamla” Britney komin til að vera enda nóg komið af bulli og vitleysu hjá henni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig