Söngkonan og X-Factor dómarinn Britney Spears er forsíðustúlka Lucky tímaritsins í desembermánuði.
Britney er fótósjoppuð í “drasl” eins og sagt er á góðri íslensku og með hárkollu á myndunum sem voru teknar fyrir tímaritið en ég skil eiginlega ekki hvað tímaritið eða stílistinn hennar voru að spá fyrir myndatökuna!
Britney talar meðal annars um drengina sína tvo en hún segir að sér finnist það vera í góðu lagi ef þeir vilja feta í fótspor sín sem skemmtikraftar, svo framarlega sem þeir hafi gaman af því sem þeir eru að gera og eru ekki þvingaðir í neitt.
Samt segir Britney, sem skaust upp á stjörnuhimininn fyrir fjórtán árum, að hún muni alltaf vera við hlið þeirra sem rödd skynseminnar og passi uppá að þeir geri ekki einhverja vitleysu.
Synir Britney sem eru sex og sjö ára gamlir skilja ekki alveg hversu fræg mamma þeirra er.
Þegar Britney fer að taka upp þætti fyrir X-Factor þá segja þeir:
“Mamma er farin til að vera ofurhetja en þegar hún kemur til baka þá er hún bara mamma og síðan byrjar sama sagan aftur þegar hún fer að taka upp næsta þátt – þá er mamma bara í ofurhetjuleik.”
Krúttlegt!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig