Söngkonan Britney Spears og Jason Trawick eru hætt saman eftir þriggja ára samband en parið trúlofaði sig árið 2011.
Britney sendi frá sér yfirlýsingu til People þar sem hún sagði:
“Við Jason höfum ákveðið að slíta trúlofun okkar, ég mun alltaf dá hann og við munum halda áfram að vera góðir vinir”.
Jason gaf einnig út yfirlýsingu sem hljóðar svo:
“Þessum kafla í lífi okkar er lokið en nýr opnast í staðinn. Ég elska hana og þykir vænt um hana og drengina hennar og við munum alltaf vera náin”.
Tilkynningarnar frá þeim báðum komu eftir að Jason hætti sem “forráðamaður” Britney en hann var með yfirumsjón með fjármálum og lífi söngkonunnar.
Núna er það faðir hennar sá sem mun sjá um hennar mál í bili.
Parið kynntist þegar Jason var umboðsmaður söngkonunnar en Britney er búin að skipta um umboðsfyrirtæki. Það gerði hún í síðustu viku en þá kom strax upp orðrómur um að parið væri að slíta samvistum.
Miklar spegúleringar hafa verið uppi um sambandsslitin en sambandið hefur verið á brauðfótum undanfarna mánuði. Jason leið eins og hann væri pabbi hennar frekar en unnusti þar sem að hann var alltaf að passa upp á að allt væri í lagi hjá Britney. Þannig uxu þau hvort frá öðru og sáu að samband þeirra gengi ekki lengur upp.
Britney mun ekki sitja áfram sem dómari í X-Factor en samningaviðræður eru í gangi hjá Britney og hennar fólki um að söngkonan muni jafnvel vera með sína eigin sýningu í Las Vegas en þá myndi hún koma fram nokkrum sinnum í viku og flytja þekkta slagara frá ferli sínum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig