Britney er svo sannarlega komin aftur! Söngkonan og nú X-Factor dómarinn Britney Spears nældi sér í forsíðuviðtal við ELLE og það er óhætt að segja að hún hefur sjaldan litið betur út.
Britney segir meðal annars frá því í viðtalinu að hún elski að ganga í gallabuxum og íþróttapeysum, hún sé algjör strákastelpa inn við beinið. Henni finnst afar erfitt að vera alltaf með útlitið upp á tíu eins og Kim Kardashian, það stríði hreinlega gegn hennar samvisku og trú að vera alltaf fullkomin og tilbúin fyrir myndavélarnar – það sem þú sérð er hinn sanna Britney.
Hún bætir því reyndar við þegar hún sér myndir af sér í slúðurblöðum í fötum sem eru ekki alveg smart að þá hugsi hún:
“Jæja ég þarf að fara að bæta ráð mitt í fatavali.”
Britney hefur verið í sviðsljósinu frá því að smellurinn hennar “Baby One More Time” kom út og hún segist vera hætt að hlusta eða lesa slúðrið sem er sagt við hana og hún hafi hálfpartinn “vanist” papparössunum og heimskulegu spurninga þeirra. Það sem fólk skáldi um hana sé bara skáldskapur og hún og hennar nánustu vita sannleikann.
Mikið er nú gott að hin “gamla” Britney er komin aftur og það verður spennandi að fylgjast með henni í “X-Factor” í vetur!
____________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig