Það eru vandræði í sambandi Britney Spears og unnusta hennar Jason Trawick. Nú hafa þau frestað brúðkaupi sínu en parið ætlaði að ganga í það heilaga í lok desember.
Þau hafa tilkynnt vinum og vandamönnum að brúðkaupinu hafi verið frestað um óákveðinn tíma en nánir vinir segja að það verði örugglega ekkert úr brúðkaupinu.
Britney býr núna á hóteli vegna X-Factor þáttanna en upptökur á lokaþáttunum fara fram um þessar mundir. Jason býr á sama hóteli en þau sofa þó ekki í sama herbergi og hafa ekki gert í langan tíma.
Britney er búin að fá nóg af Jason og finnst hann ekki vera sá maður sem hún kynntist fyrst, hún er farin að fyrirlíta hann og finnst hann alls ekkert skemmtilegur lengur segja vinir hennar.
Jason hefur “forræði” yfir Britney ásamt foreldrum hennar og hún lítur á hann sem föður í staðinn fyrir elskhuga. Jason er líka orðinn þreyttur á því að vera “barnapía” söngkonunnar og að sjábara um viðskiptahliðina í lífi hennar. Hann elskar víst Britney og strákana hennar en þetta er ekki framtíðin sem hann sá fyrir sér með henni.
Foreldrar Britney eru miður sín yfir þessu en þau líta á Jason sem einn meðlim fjölskyldunnar og systir hennar er einnig miður sín yfir ástandinu og finnst að hann hefði betur sleppt því að biðja Britney, þá væri staðan ekki svona í dag.
Það sem flækir málin verulega er að Jason er með “forsjá” yfir fjármálum og viðskiptum Britney ásamt foreldrum hennar.
Þvílíkt líf! Það er greinilega ekki bara tekið út með sældinni að vera Britney blessunin Spears.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig