Söngkonan Britney Spears hefur ekki fengið góða gagnrýni fyrir störf sín sem dómari í X-Factor þáttunum í Bandaríkjunum og orðrómur er á kreiki að henni verði hent úr dómarasætinu fyrir næstu þáttaröð.
Britney virðist þó vera að gera það sem henni finnst skemmtilegast að gera núna, byrjuð að vinna með nýjum pródúsentum og listamönnum og semur og syngur lög með þeim. Ný plata er víst væntanleg á árinu frá henni. Þegar hún er spurð út í X-Factor uppsögnina segir hún bara að hún sé mjög einbeitt að vinna að tónlist sinni þessa stundina.
Ef Britney gefur út plötu þá er væntanlega von á tónleikaferðalagi frá henni en Britney fékk mikla gagnrýni fyrir síðasta tónleikaferðalag sitt þar sem að hún “mæmaði” öll lögin.
Kannski tekur hún keppendurna úr X-Factor sér til fyrirmyndar fyrir næstu tónleikaferð og syngur sjálf í stað þess að syngja þögult eftir hljóðupptöku.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig