Það virðist sem það séu vandræði í hjónabandi Jay Z (43) og Beyoncé (32) en hjónakornin hafa samkvæmt heimildum vestanhafs ákveðið að vera sundur í smá tíma.
Vandræðin hófust þegar Jay Z ákvað að fylgja ekki Beyoncé á heimstúrnum í Ástralíu og ákvað þess í stað að keyra tónleikaferð sína í gang í Evrópu.
Hjónin sáust fyrir ekki svo löngu síðan á Nýja Sjálandi í “fríi” með Blue Ivy litlu en tilgangur ferðarinnar var ekki frí heldur voru þau að reyna að bjarga hjónabandinu sínu sem er, að sögn kunnugra, komið á ystu brún. Þetta var því einskonar björgunarleiðangur sem vonandi tókst.
Þegar þú ert súperstjarna á heimsmælikvarða þá er óhjákvæmalegt að það komi upp vandræði í hjónabandinu einhverntímann á lífsleiðinni – alveg eins og hjá öllum hinum. Það getur ekki verið auðvelt að láta mynda sig í bak og fyrir alla daga og hvert skref sem þú tekur er skjalfest og skrifað um. Allt sem þú gerir fyrir augum almennings, svo gott sem alltaf.
Við skulum vona að þetta séu bara sögusagnir en ekki sannleikur en ef svo er þá vona ég svo sannarlega að þau leysi sín mál. Svo flott saman og miklir snillingar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig