Angelina Jolie og Brad Pitt hafa verið saman mjööög lengi á Hollywood mælikvarðann en nú eru komin sex ár síðan þau byrjuðu við hneykslan og OMG frá Hollywoodlandi.
…hún átti jú að hafa stungið undan Jennifer Aniston sem var enganveginn hress með að kallinn færi að tralla með annari stjörnu og var ekkert að skafa af því.
En líklegast var þetta bara “ment tú bí” hjá þeim. Eftir sex ára samband segist Angelina aldrei hafa fundið fyrir leiða í sambandinu og hún er alltaf skotin í Brad sínum sem er vel gert því Angelina var þekkt fyrir að fá leið á samböndunum sínum.
“Ég er rosalega heppin með Brad. Hann er sannur herramaður en á sama tíma er hann líka alvöru karlmaður. Hann hefur þetta jafnvægi á milli þess að vera æðislegur pabbi, mjög kærleiksríkur, mjög mjög greindur og líkamlega er hann alvöru karlmaður… í fyllstu merkingu og á öllum vígstöðvum,” sagði Angelina um hönkið sitt og blaðamaðurinn roðnaði víst á meðan.
Ógeðslega saaætt!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.