Brad Pitt ákvað að splæsa í einkaþotu handa Angelinu Jolie svo þau eigi betur með að hittast þegar þau eru í tökum.
Angelina tók flugmannsprófið árið 2004 en það var fyrst og fremst til að ganga í augun á elsta syni þeirra Maddox sem er núna 11 ára. Hún vildi líta út fyrir að vera mikiil hetja í augum snáðans.
Angelina leikstýrir nú í myndinni Unbroken sem tekin er upp á Hawai eyjum en Brad leikur sjálfur í myndinni FURY sem verið er að taka upp í London. Til að auðvelda þeim að hittast á milli tarna þótti Brad hreint tilvalið að splæsa í þotu handa stelpunni svo hún gæti skotist yfir.
“Hann sagði henni að hún gæti bara valið sér vélina, hann skyldi borga. Þannig gætu þau hist mikið oftar. Hana hefur líka alltaf langað að fljúga sjálf á milli heimsálfa,” sagði heimildarmanneskja í viðtali við Daily Star.
Sex barna móðir, flugmaður, leikkona, leikstjóri og sitthvað fleira. Mögnuð týpa.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.