Brad Pitt var ekkert rosalega klár þegar hann lýsti því yfir í viðtali að hann hafi verið að feika hamingjusamt samband þegar hann var giftur Jennifer Aniston.
Hann sagði líf sitt hafa verið ferlega viðburðalítið í öll þessi fimm ár sem þau voru gift.
Jennifer var að vonum ekki hress með yfirlýsinguna og sendi sína fulltrúa af stað til að lesa honum pistilinn ef svo má að orði komast. Brad skammaðist sín og sendi aftur frá sér yfirlýsingu innan 24 tíma.
Sagði að þessi orð hefðu verið tekin úr samhengi í viðtalinu og að Jennifer Aniston væri gefandi, dásamleg og ótrúlega fyndin kona.
Enginn trúir því samt að orðin hafi verið tekin úr samhengi og margir halda að hann sé einfaldlega svekktur yfir því að Jen sé búin að finna ástina með Justin Theroux.
Hún var jú eiginlega ein og í ástarsorg eftir að þau skildu en er núna í blússandi hamingju með nýja kærastanum Justin.
HÉR eru flottar myndir af honum.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.