Leikkonan Gwyneth Paltrow er stórglæsileg í janúarhefti InStyle tímaritsins fyrir 2013.
Gwyneth, sem er gift söngvaranum Chris Martin, segir að hún hafi þurft að hafna ansi mörgum aðalhlutverkum sökum þess að hún sé mamma.
Gwyneth setur börnin sín í fyrsta sætið og segir að fólk skilji stundum ekki af hverju hún taki þær ákvarðanir sem hún gerir.
Það sé viss áhætta að vera að sífellt að neita stórum kvikmyndahlutverkum en framinn er ekki sá sami núna og fyrir börnin. Áður en þau komu í heiminn lék hún aðalhlutverk í nokkrum myndum á ári en leikkonan hefur ekki leikið aðalhlutverk í mynd síðan þau fæddust.
Þegar Gwyneth tekur að sér að leika í kvikmynd þá segir hún að hún skoði eitt já aðeins eitt aukahlutverk á ári, það sé það eina sem hún ráði við eins og staðan er í dag.
Sumar konur geti gert meira og leikið í fleiri myndum þrátt fyrir að eiga börn, en aðstæður hennar leyfi það hreinlega ekki núna. Hún segist taka skynsamlegar ákvarðanir sem koma best út fyrir sig, börnin og eiginmanninn. Gwyneth segir líka að það sé einfaldlega ekki hægt að eiga allt og fá allt, henni sé alveg sama hvað öðrum finnist, þetta er hennar líf og hennar ákvarðanir.
Greinilega nóg að gera í herbúðum Martin hjónanna en Chris Martin er söngvari bresku hljómsveitarinnar Coldplay og þeir eru duglegir að koma fram víðsvegar um heiminn.
Gwyneth vil því reyna að veita börnunum sínum sem eðlilegast umhverfi og vera til staðar fyrir þau þegar pabbi þeirra er í burtu – það einfaldlega gangi ekki upp að þau séu bæði fjarverandi.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig