Blake Lively og Ryan Reynolds giftu sig fyrir stuttu síðan og um það má lesa hér.
Það náðist mynd af hjónakornunum kyssast daginn eftir brúðkaupið og hringurinn sést greinilega á myndinni en það var engin önnur en skartgripahönnuðurinn Lorraine Schwartz sem hannaði hringinn – stórglæsilegur.
Blake er á fullu að taka upp lokaseríu Gossip Girl þessa dagana í New York en hún hefur ekki mætt með hringinn á tökustað.
Hringurinn er mun meira mál í Bandaríkjunum heldur en til að mynda hér á landi þar sem við erum flestar með eins hring og eiginmaðurinn en í Ameríkunni er það stærð demantsins sem skiptir jú öllu máli.
Enda söng Marilyn Monroe: “Diamonds are a girl´s best firend”.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig