Það virtist koma eins og þruma úr heiðskýru lofti þegar það fréttist að Hollívúdd parið Blake Lively og Ryan Reynolds gengu í það heilaga um helgina síðustu.
Athöfnin fór fram í Boone Hall, í Suður Karólínu sem er staðsett rétt fyrir utan Charleston og var fámenn en góðmenn en sjötíu nánustu vinir þeirra og vandamenn voru á staðnum. Það var eins og ávallt þegar Hollywood fólk gengur í það heilaga að skemmtiatriðin í brúðkaupsveislunni voru ekki af verri endanum.
Florence Welch söngkona Florence + The Machine, söng þrjú lög og Bette Midler kom einnig fram en síðan hélt plötusnúður fjörinu uppi fram á nótt.
Parið kynntist við tökur á kvikmyndinni “The Green Lantern” og hafa þau verið saman í ár. Ryan var áður giftur leikkonunni og þokkadísinni Scarlett Johanson en þetta er fyrsta hjónaband Blake.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig