Leikkonan Blake Lively er á forsíðu tímaritsins Marie Claire í júlímánuði. Það sem færri vita er að Blake sér alveg um það að stílisera sig sjálf, hún er ekki með stílista og oft farðar hún sig og greiðir sér fyrir rauða dregilinn.
Hún segir samt oft við sjálfa sig; “Guð af hverju er ég að gera þetta allt sjálf, þetta er svo mikil aukavinna fyrir mig”. Aðstoðarkonan hennar hringir oftar en ekki í tískurisana til að biðja um kjóla og fatnað en hún velur flest allt sjálf, skó, skartgripi og fatnað.
Blaðamaður Marie Claire spyr hana hvers vegna hún sé ekki með stíllista til þess að aðstoða sig og þá svarar Blake að hún elski tísku, tíska sé visst tjáningarform. Þegar hún sér einhvern frægan sem lítur vel út að þá getur hún séð það út hver það var sem stíliseraði viðkomandi. Það hefur nefnilega hver stílisti sinn eigin stíl.
Blake er hávaxin og grönn, vaxin eins og fyrirsæta og getur klæðst nánast hvaða tískufötum sem er gallalaust. Fólk ruglar henni reyndar oft saman við karakterinn sem hún leikur en Blake er ekki jafn lauslát og hún er í þáttunum, hún hefur aðeins átt fjóra kærasta og fólk er yfirleitt hissa á því með hversu fáum mönnum hún hefur verið. Henni finnst tilgangslaust að vera með manni sem er ekki spennandi eða skemmtir henni og þá vill hún frekar vera ein.
Tímaritið kemur út þann 19.júní næstkomandi, hér að neðan má sjá myndir úr blaðinu og hér má lesa viðtalið nánar.
Þess má geta að Blake var með hundana hans Ryan Reynolds á settinu (en hann er kærstinn hennar) og annar þeirra pissaði á hátískukjól þegar verið var að taka myndirnar- það er ekki búið að gefa upp hvaða kjóll það var en fokdýr var hann!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig