Já það er óhætt að segja að Beyoncé hafi heldur betur sýnt það og sannað í nótt að hún er frábær listamaður sem getur sungið í “beinni” ásamt því að koma með svakaleg dansspor og frábæra skemmtun fyrir áhorfendur.
Beyoncé kom fram í hálfleik í Super Bowl í nótt og stóð hún fyrir sínu, þar flutti hún meðal annars lögin Crazy In Love, , Baby Boy og síðan Destiny´s Child slagarana Independent Woman og Bootylicious.
Já OG Destiny´s Child komu saman aftur eftir nokkra ára hlé en orðrómur var á kreiki að þær myndu koma saman en allar þverneituðu þær fyrir það, þannig að þetta var svona eiginlega “verst” geymda leyndarmál kvöldsins.
Sýningin var það mikið sjónarspil að Superdome höllin varð rafmanglaus í meira en hálftíma vegna þess að það þurfti að nota svo mikið rafmagn og ljós í flutning Beyoncé.
Söngkonan klæddist smart leðurkorsilettu með blúndu frá frekar óþektum hönnuði í New York sem heitir Rubin Singer. Beyoncé var síðan í húðlituðum netasokkabuxum við korsilettuna, háum svörtum sokkum og svörtum ökklahælaskóm. Hárið var krullað og það er óhætt að segja að söngkonan hafi verið stórglæsileg og hún flutti lög sín óaðfinnanlega.
Það sem vakti hinsvegar mikla athygli var hversu lágt heyrðist í Kelly og Michelle þegar þær fluttu Destiny´s Child lögin sín en það er ekki vitað hvort það voru tæknileg mistök eða hvort Beyoncé hafi viljað láta heyrast meira í sér.
Þess má einnig geta að Beyoncé, Alicia Keys, Jennifer Hudson, Michelle og Kelly eru allar svartar en Beyoncé var mjög stolt af þessu og skrifaði miða handa þeim þar sem hún lýsti því hversu glöð hún væri að allar þessar sterku konur væru samankomnar til þess að flytja lög á þessu kvöldi.
Sjáðu myndbandið af svakalegum flutning Beyoncé og Destiny´s Child hér að neðan.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=AwYwUs4EQ-0&feature=share[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig