Blue Ivy Carter dóttir Beyonce og Jay-Z er orðin sex mánaða og voru þær mæðgur myndaðar í verslunarleiðangri í Bergdorf Goodman á dögunum.
Beyonce skartar nú nýrri hárgreiðslu en hún hefur látið setja fléttur í allt hárið sitt og var með þær í háum snúð. Beyonce var síðast með fléttur fyrir um tíu árum þegar hún var að koma fram með Destiny´s Child.
Það er meira en nóg að gera hjá Beyonce en hún hélt nýlega tónleika sem seldist strax upp á, hún er á fullu að semja nýja tónlist og svo hannar hún föt í samvinnu við móður sína, allt frá gallabuxum til síðkjóla.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af þeim mæðgum þegar þær voru að yfirgefa verslunina og einnig mynd af Blue Ivy en það er afar sjaldgæft að það náist andlitsmynd af henni þar sem að öryggisverðir þeirra hjóna eru fljótir að hlaupa til þegar einhver tekur upp myndavél eða síma til þess að ná mynd af henni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig