Söng og leikkonan Beyonce er nýbökuð móðir en lætur það ekki stöðva sig frá því að takast á við ný verkefni en nú leitar hún logandi ljósi að framleiðslufyrirtæki fyrir nýja heimildarmynd.
Beyonce stefnir að því að leikstýra myndinni sjálf en myndin mun fjalla um líf hennar ásamt því að vera blanda af tónlist, persónulegum atvikum, tónleikauptökum og viðtölum.
Hún og eiginmaður hennar Jay-Z hafa alltaf verið mjög ‘prívat’ og ekki hleypt mörgum nálægt sér eða inn á sitt persónulega svæði, þannig að þetta er glænýr vínkill á ferli og lífi hennar. Og hver veit, kannski birtist litla skvísan þeirra Blue Ivy í myndinni?
Nú er bara spurning hvort að einhver áhugasamur í Hollywood rétti fram hjálparhönd og myndin verði að veruleika? Líkurnar eru afar miklar.
Hér sérðu svo smá viðtal við dívuna þar sem hún segist hafa dansað sig í form eftir barnsburð…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=jKCuRHaYu60[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig