Söng og leikkonan hefur verið afar prívat þegar kemur að dóttur sinni Blue Ivy en nú hefur hún leyft aðdáendum að kíkja í fjölskyldualbúmið.
Beyonce er með Tumblr síðu þar sem hún hefur verið dugleg að deila myndum með aðdáendum sínum af sér sjálfri. Þar sem hún nú orðin mamma líka fær Blue Ivy að vera með á nokkrum myndum með mömmunni sinni.
Beyonce sagði í viðtali við Anderson Cooper á dögunum að henni finnist hún loksins vera farin að finna tilgang með lífinu og tilverunni eftir að dóttir hennar fæddist. Hún segir að sjálfstraustið hafi aukist og lífið gjörbreyst. Allt sé orðið öðruvísi.
Að lokum segist hún elska að skipta á bleyjum og sinna litlu dömunni sinni. Það skipti engu máli hvað hún sé að gera fyrir eða með Blue Ivy – Allt skemmtilegt!
Kannski að Mariah Carey ætti að fara taka Beyonce til fyrirmyndar og fara að skipta á tvíburunum sínum!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig