Núna er allt vitlaust hjá Kardashian fjölskyldunni vegna dagbókar sem komin er upp á yfirborðið. Dagbókin var í eigu Roberts Kardashian, pabba systranna en það eru tíu ár síðan hann lést.
Ekkja Roberts, Karen Kardashian lét slúðurblaðið In Touch hafa dagbókina en Robert var afar duglegur að skrifa hvert einansta smáatriði sem viðkom fjölskyldunni hans, fyrir og eftir skilnað hans við Kris.
Í bókinni kemur meðal annars fram að Kris hafi sparkað í Kim og hótað að drepa hana þegar hún var aðeins átta ára gömul. Hann skrifar einnig í bókina að Kris hafi látið sig hverfa dögum saman til þess að hitta viðhaldið sitt Todd Waterman og hafi ekki komið eða hringt svo dögum skipti til þess að athuga hvernig börnin hefðu það eða til að láta vita af sér.
Kardashian systurnar Kourtney, Kim og Khloe hafa aldrei farið leynt með það að mamma þeirra er frekar sérstök og oftar en ekki kalla þær hana Kris en ekki mömmu.
Kardashian fjölskyldan er í sjokki eftir þetta og segja Karen vera gullgrafara sem sé farin á hausinn núna og hafi selt þessa bók vegna þess að hún þurfti á peningunum að halda.
Khloe tjáði sig aðeins um málið á Twitter og sagði að þessar ásakanir séu lygi. Kris hefur enn ekki tjáð sig vegna þessa máls en það er jafnvel spurning hvort að fjölskyldan fari í meiðyrðarmál við Karen
…tja nema að þessar ásakanir séu sannar og fleiri og jafnvel ljótari hlutir eigi eftir að koma upp á yfirborðið?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig