David og Victoria Beckham eru flutt aftur heim til Bretlands eftir að hafa búið í Los Angeles síðan árið 2007.
Strákar hjónanna hafa verið í fínum einkaskólum í Los Angeles en þeir voru kvaddir með pomp og prakt fyrir jólin með stórri athöfn þar sem hjónin voru afar hrærð og þökkuðu kærlega fyrir sig en þeim líkaði búsetan vel vestanhafs.
David er hættur að spila knattspyrnu fyrir LA Galaxy og miklar vangaveltur eru um það hvar kappinn mun enda feril sinn en hann hefur aldrei farið leynt með það að hann vilji enda hann í heimalandi sínu Englandi.
Victoria leitar logandi ljósi að skóla fyrir drengina sína en þau eru líka sögð leita að nýju húsnæði fyrir fjölskylduna sem telur sex en hjónin eiga saman synina Romeo, Brooklyn, Cruz og litlu skvísuna Harper Seven.
Það verður spennandi að sjá hvað þessi mögnuðu hjón taka sér fyrir hendur í heimalandinu en sonur þeirra Romeo er búinn að sitja fyrir hjá Burberry.
Mörgum þykir kappinn vera frekar ungur til þess að taka þátt í slíkri auglýsingaherferð á meðan öðrum finnst hann slá í gegn!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig