Unnusti Halle Berry Oliver Martinez og barnsfaðir hennar Gabriel Aubry lentu í slagsmálum á heimili leikkonunnar þegar Gabriel var að koma með dóttur þeirra heim til Halle.
Slagsmálin byrjuðu vegna ummæla unnusta Halle en hann sagði við Gabriel, þegar hann kom með Nöhlu, að þessu yrði að linna og allir þyrftu að fara að halda áfram með líf sitt. Gabriel reiddist þá svo um munaði. Eftir slagsmálin kom í ljós að Gabriel hafði brotið rifbein og hlotið áverka í andliti og Oliver handleggsbrotnaði og slasaðist á hálsi.
Nú hafa Halle og Oliver sótt um nálgunarbann á Gabriel vegna þessara slagsmála en Halle vill ekki að dóttir sín upplifi eða verði vitni af ofbeldi.
Þetta verður þakkargjörðarhátíð sem enginn þeirra gleymir. Við skulum vona barnsins vegna að þessi þrjú geti leyst þetta mál á sómasamlegan hátt í framtíðinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig