Leikarinn Ashton Kutcher hefur engu gleymt frá því að hann sat fyrir hjá Calvin Klein á nærfötunum einum fata í byrjun framans.
Ashton og ofurfyrirsætan Alessandra Ambrosio sitja fyrir Colocci vor og sumar 2013 en myndaþátturinn var tekinn í Rio de Janeiro í Brasilíu. Colocci er Brasilískt fatamerki og þegar veturinn kemur hjá okkur hefst sumarið hjá þeim.
Alessandra er stórglæsileg í þessum myndaþætti en OFURfyrirsætan mætti í tökur nokkrum vikum eftir að hún eignaðist sitt annað barn! Ashton hefur verið að hitta leikkonuna Milu Kunis undanfarið en þau hafa ekki gert það opinbert að þau séu að hittast.
Hér að neðan er stórt myndasafn með myndum fyrir Colocci.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig