Leikararnir Ashton Kutcher og Mila Kunis léku saman á sínum unglingsárum í That 70´s Show.
Ashton segist alltaf hafa verið svolítið skotinn í Milu en gerði ekkert í því.
Mila var með fyrrum barnastjörnunni Macaulay Culkin og síðar giftist Ashton Demi Moore en þau hafa verið aðskilin í meira en ár og miklar vangaveltur hafa verið uppi um hvort þau hafi í raun og veru verið gift en þau giftu sig að Kabballah sið.
Fjölmiðlafulltrúi þeirra segir þó að það sé til löglegt skjal sem segir að þau séu gift, þá er bara stóra spurningin hvort þeirra mun sækja um skilnaðinn?
Ashton og Mila hafa verið afar innileg upp á síðkastið og hafa verið að hittast í nokkra mánuði. Samkvæmt vinum þeirra hafa þau sjaldan eða aldrei verið hamingjusamari og eru hæstánægð með að hafa loksins fundið hvort annað og ekkert annað skiptir máli en bara þau tvö þegar þau eru saman.
Awwww….
__________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig