Anne Hathaway ræddi við blaðamann Allure og lét mynda sig rétt áður en hún lét snoða sig fyrir hlutverk í Vesalingunum.
Í viðtalinu ræðir hún meðal annars um sex daga detox kúr sem gerir það að verkum að líkaminn hreinsar sig alveg út en að hennar sögn er fátt betra en að lifa á Hummus og Radísum og vera öll í bólum þegar hún líti í spegilinn (smá kaldhæðni). Ágætt að getað grínast um leið og hún er að drepast úr hungri.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leikkonan þarf að grennast eða líta vel út fyrir hlutverk því að hún leikur einnig Catwoman í nýjustu Batman myndinni. Sú er væntanleg í bíó á næstu dögum og að hennar sögn fór hún varla út úr ræktinni í tíu mánuði enda búningurinn er afar þröngur og sýnir allt – Lykilatriði að líta vel út og vera með línurnar í lagi ef þú ert kattarkonan.
Anne er trúlofuð Adam Shulman en hann er fyrrverandi leikari og núverandi skartgripahönnuður. Parið hefur verið saman í þrjú ár og að stofna fjölskyldu með honum er ofarlega í huga Anne en hún segist þó ætla að byrja á því að eignast eitt barn.
Anne vonast til að getað haldið áfram að vera grænmetisæta á meðgöngunni svo að barnið fái öll helstu næringarefnin sem það þarfnast. Að eigin sögn tók það hana smá tíma að venjast því að vera grænmetisæta (vegan) og hún saknar ostsins sem henni finnst afar góður.
Ég veit ekki með þig en ég er orði hrikalega spennt að sjá Anne leika kattarkonuna í nýjustu Batman myndinni!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig