Leikkonan Anne Hathaway er á fullu að kynna kvikmynd sína Vesalingana og nældi sér í forsíðu og viðtal í janúarhefti Glamour 2013.
Anne var nýlega í brúðkaupsferð sem hún segir að hafi verið yndisleg en á meðan á ferðinni stóð áttaði hún sig á því að hana vantar ekkert og ætlar ekkert að kaupa neitt handa sjálfri sér fram að áramótum!
Anne er með mikið keppnisskap og VILL keppast um hlutverk. Hún vill vinna fyrir hlutverkinu og geta sagt- “þetta er mitt, ég gerði þetta”.
Konur eiga það til að skilgreina sig margvíslega en Anne segir að við séum undir mikilli pressu að vera svona eða hinsegin. Erum líka oft skilgreindar á villtu hliðinni okkar eins og hversu mörgum strákum við höfum sofið hjá eða hversu fullar við verðum á djamminu. Er það sanngjarnt?
Anne rifjar upp sínar skemmtilegustu minningar í þessu fína viðtali en hennar bestu minningar tengjast því að fara út að dansa -Hún elskar að dansa!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig