Jú mikið rétt, Angelina Jolie og Mick Jagger úr Rolling Stones hafa farið í ‘lárétt limbó’ saman. Þetta kemur fram í ævisögu Jaggers sem nefnist “MICK: The Wild Life and Mad Genius of Jagger”.
Angelina lék fatafellu í myndbandi þeirra félaga “Anybody Seen My Baby” árið 1997. Angelina sýndi því ekki mikinn áhuga á að leika í myndbandinu en mamma hennar var sú sem ýtti henni áfram í “giggið” og heimtaði að hún myndi taka þátt í þessu.
Mick og Angie voru bæði gift á þessum tíma en herra Jagger segir að hann hefði hiklaust skilið við konuna sína (Jerry Hall) ef Angelina hefði beðið hann um það. Hún var þá gift Jonny Lee Miller leikara sem margir kannast við úr Trainspotting.
Mick lét Angelinu ekki vera á þessum tíma, var yfir sig hrifinn af þessum villta karakter og var búinn að fylla símsvarann hennar mörgum sinnum þegar hún lét loksins undan og hitti kappann í Flórída. Adam var þó ekki lengi í paradís því Angie vildi síðan ekki sjá hann eftir allt saman en hélt þó einhverju sambandi í tvö ár eða allt til ársins 1999.
Í ævisögunni kemur sitthvað fleira fram en þessi spræki rokkari hefur vægast sagt komið víða við. Ekki nóg með að Mick hafi verið með Angelinu heldur var hann einnig með David Bowie!
Þeir voru miklir félagar og eyddu góðum tíma saman, fóru út að borða, gistu á fínum hótelum, stunduðu lárétt limbó saman, líka með öðrum og konur þeirra virtust kippa sér lítið upp við þetta. Konan hans David Bowie kom meðal annars að þeim sofandi heima hjá sér allsberum saman og bauð þeim bara kaffi og appelsínusafa.
Jahá það er ekkert annað?!
Það verður án efa fróðlegt að lesa þessa bók en Mick heldur ekki aftur af sér í bókinni og segir frá ÖLLU!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig