Jennifer Aniston og Angelina Jolie hafa ekki bara sama smekk á karlmönnum, þ.e.a.s Brad Pitt, þær hafa líka mjög sambærilegan stíl og hafa oft sést klæddar mjög svipað í gegnum árin.
Nú síðast sáust þær báðar með eiginlega alveg eins töskur frá Tom Ford.
Taskan ber vöruheitið ‘Carine’ og er dökk leðurtaska með gylltri sylgju. Mjög flott og slick taska.
Það var Jolie sem eignaðist sína tösku á undan Jennifer, að minnsta kosti var hún fyrri til að sjást með hana þann 8 sept í London.
Á mánudaginn sást svo Jennifer Aniston með næstum alveg eins tösku, tveir litir, keðjuól, svart glansandi leður og gróf gyllt sylgja.
Jennifer Aniston hefur árum saman verið mikill Tom Ford aðdáandi og á margar töskur eftir hann. Brad Pitt er líka mikill aðdáandi en hann er jafnan í jakkafötum frá meistara Ford, nú síðast á frumsýningum Moneyball sem er nýjasta mynd hans.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.