Angelina Jolie er alltaf jafn töff!
Hún mætti á frumsýningu með kærastanum Brad Pitt (töff að eiga hann fyrir kærasta) búin að handjárna við sig gulltösku frá Louis Vuitton.
Taskan kallast Lockit PM Devotion og er svona ‘clutch’. Það má segja að fylgihluturinn hafi í þessu tilfelli verið aðal atriðið því hún var í litlum svörtum kjól við sem vakti ekki eins mikla athygli.
Angelina sat nýlega fyrir í auglýsingu hjá Louis Vuitton en myndirnar voru teknar niðri í Kambódíu þar sem Angelina hefur mikið dvalist.
Sagt er að hún hafi fengið risaupphæðir fyrir vinnuna sem hún lét allar renna óskiptar til góðgjörðarmála.
Töff, töff, töff!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.