Sorglegar fréttir. Amy Whinehouse var nýtrúlofuð Reg Traviss þegar hún lést. Hann hafði beðið hennar skömmu áður og hún játaði strax.
Amy var mjög ástfangin af Reg sem er upprennandi leikstjóri í London. Þau voru búin að vera saman í tvö ár, aðeins fram og til baka (hann hélt framhjá með sinni fyrrverandi) en voru komin á fast og langaði að búa til fjölskyldu. Svo er gaman að minnast á að plötur Amy Winehouse, Frank og Back to Black eru að toppa vinsældarlistana hjá iTunes. Ef þú átt hvoruga skaltu kaupa þær núna, Back to Black er ein flottasta “ástarplata” sem hefur verið gefin út. Lögin æðisleg, Amy var æðisleg og dauði hennar mikill missir fyrir tónlistarheiminn.
Hér sést Reg fyrir utan húsið hennar eftir að hún lést. Stendur einn á götuhorni og kastar kveðju á aðdáanda sem vottar honum samúð:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=pExrOMha7Wg[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.