Textinn við lag Beyoncé og Jay Z “Drunk in Love” hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir ósmekklega vísun í heimilisofbeldi (sem Tina Turner varð fyrir af hálfu fyrrum eiginmanns síns Ike) en þegar 3 ömmur lesa textann þá er nú ýmislegt annað sem þær hafa út á að setja, viðbrögð þeirra eru stórkostleg!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=5o-ZFMd1_SE[/youtube]
Hér að neðan má svo heyra lagið umtalaða en Jay Z fer með textann ósmekklega “Baby know I don’t play…I’m Ike Turner…now eat the cake Anna Mae.” Vísar hann þar í hrottalegt atvik sem átti sér stað þegar Ike Turner tróð köku upp í Tínu og píndi hann til að borða hana.
Ekki hafa þau hjón Beyoncé og Jay Z svarað almennilega fyrir hvað þeim gekk til með þessum texta, hvort þetta var upphefð eða gagnrýni á þetta hrottalega ofbeldissamband sem heimsbyggðin fékk að vita um í kvikmyndinni “What´s love got to do with it?” um ævi Tinu Turner sem kom út 1993 (mæli með henni fyrir þá sem ekki hafa séð).
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=p1JPKLa-Ofc[/youtube]
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.