Jæja dömur, Johnny Depp er einhleypur og í ástarsorg en hin unga Amber Heard hefur sagt bless bless við hjartaknúsarann.
Leikkonan yfirgaf Johnny og skellti sér til Parísar til þess að eyða tíma með dömu að nafni Marie de Villepin en hún er dóttir fyrrverandi forsætisráðherrans Dominique de Villepin og starfar sem fyrirsæta.
Johnny sem var orðinn yfir sig hrifinn af leikkonunni og tilbúinn að gera hvað sem er fyrir hana situr eftir í sárum og er niðurbrotinn eftir að hún fór frá honum. Amber, sem hefur ekki verið feimin með kynhneigð sína, sagði nýlega að hún laðaðist frekar að konum og jafnvel sjálfur Johnny Depp gat ekki snúið henni til gagnkynhneigðar.
Amber, sem er mikið yngri en Johnny, var þó farin að bera einhverjar tilfinningar til hans en um leið henni þóttu þær þokast of langt fékk hún bakþanka og stakk af.
Johnny og Amber voru farin að ræða barneignir og hjónaband en Johnny kappinn er víst afar mislyndur í skapi og það er ein af ástæðum þess að Amber fékk nóg og leitaði í faðminn á hinni frönsku Mariu. Svona getur þetta gengið.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig