Leikkonan Amber Heard (26) er miður sín þessa dagana en samkvæmt heimildum slúðurpressunnar vestra hefur hún ákveðið að taka sér smá pásu frá Johnny Depp (49).
Leikkonunni ungu finnst vera of mikið álag á sér og kjaftasögur ganga núna að hún sé hjónaspillir en sannleikurinn er sá að Vanessa og Johnny voru skilin í lok síðasta árs en tilkynntu það aðeins í sumar. Amber átti kærustu sem heitir Tasya van Ree og sagði hún henni upp þegar tökum á “The Rum Diary” lauk en Johnny og Amber kynntust einmitt við gerð hennar. Þá fór samband Johnny og Amber að þróast.
Amber ætlar að taka sér einhvern umhugsunarfrest varðandi samband þeirra og vill vera utan sviðsljóssins á meðan kjaftasögurnar standa sem hæst enda er stúlkan ung að árum, barnlaus og er ekki alveg viss hvort hún vilji blanda sér í fjölskyldumál Vanessu og Johnny.
Fyrrverandi hans Johnny, Vanessa Paradis, er ekki sátt við stúlkuna eins og lesa má hér. Bíbí skorar hinsvegar á hana að halda áfram með sitt eigið líf.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.