Hið árlega “Hollywood Issue” frá tímaritinu Vanity Fair er nú komið út en það er gefið út mánuði fyrir Óskarsverðlaunahátíðinni sem margir bíða spenntir eftir.
Forsíðuna prýða Ben Affleck sem hefur slegið í gegn með kvikmynd sína Argo, Emma Stone sem er ein skærasta stjarnan í Hollywood um þessar mundir og hjartaknúsarinn Bradley Cooper sem hefur fengið góða dóma fyrir leik sinn í kvikmyndinni “Silver Linings Playbook”.
Þema myndanna í tímaritinu er “Ævintýri í Hollywood”. Þetta tölublað er svokallað “collectors issue” og margir bíða spenntir eftir því að það komi út en blaðið inniheldur yfir 100 heitustu leikarana í dag.
Hér að neðan getur þú séð myndir af nokkrum leikurum í tímaritinu þar á meðal Selenu Gomez, Halle Berry og Oliviu Wilde.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig