Alec Balwin og eiginkona hans til sjö mánaða Hilaria Thomas eiga von á sínu fyrsta barni saman en fyrir á Alec 17 ára gamla dóttir með leikkonunni Kim Basinger.
Hjónin eru í skýjunum yfir þessum gleðifréttum en Alec hefur ekki farið leynt með það í fjölmiðlum að honum langi í barn með Hilariu. Alec er mjög ástfanginn af henni og nánir vinir hans segja að hann hafi ekki verið svona hamingjusamur í mörg ár en Alec var kominn langt niður á tímabili og leit alls ekki vel út, drakk stíft og hugsaði lítið um það sem hann borðaði ásamt því að hann hreyfði sig ekkert.
Hjónin kynntust þegar Alec sótti Jóga tíma tíma hjá Hilariu og hann þakkar henni fyrir að hafa komið sér í form aftur en Alec lítur betur út núna en hann hefur gert í langan tíma…
…þess má geta að Hilaria er 26 árum yngri en hann sjálfur en ástin spyr víst ekki um aldur og gleðin skín af þeim tveimur í dag.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig