Fyrrverandi aðstoðarkona söngkonunnar Lady Gaga lögsækir söngkonuna vegna vangoldinna launa sem hún segir að söngkonan skuldi sér vegna mikillar yfirvinnu.
Fyrrverandi aðstoðarkonan sem heitir Jennifer O´Neill segir að hún hafi þurft að vera til taks fyrir söngkonuna allan sólahringinn alla daga vikunnar.
Hún segir að hún hafi ekki átt neitt einkalíf, hún var ekki spurð að því hvort hún vildi sér hótelherbergi, hún gat ekki hitt vini sína eða fjölskyldu, stundað kynlíf, farið á stefnumót eða gert neitt persónulegt vegna þess að hún þurfti að sofa alla daga vikunnar í sama rúmi og Lady Gaga og ástæðan fyrir því var að Gaga getur ekki sofið ein.
Jennifer segir þó að þær hafi ekki stundað kynlíf saman svo að það sé á hreinu.
Jennifer lögsækir Gaga og biður um margar milljónir en hún telur að hún eigi rétt á skaðabótum vegna þess hvernig komið var fram við hana og hún segir að hún hafi í raun og veru verið á vakt allan sólahringinn til þess að passa upp á það að söngkonan svæfi og allt væri í lagi hjá henni en Gaga er víst afar kröfuhörð þegar kemur að fólkinu sem vinnur hjá henni.
Já það er ótrúlegt hvað peningar og frægð geta fært þér, jafnvel einhvern sem svæfir þig á yfirvinnukaupi.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig