Söngkonan Adele prýðir forsíðu tónlistarblaðsins Rolling Stone en blaðið er að þessu sinni tileinkað kvenfólki.
Söngkonan, sem er að verða móðir í fyrsta sinn, les ekki slúðurblöðin en segir að vinir sínir geri það, síðan koma vinir hennar til hennar og spyrja hana hvort hún sé að hitta þennan og hinn en þá þekkir hún jafnvel ekki viðkomandi, Adele finnst slúðurblöðin vera algjört “bull****” og vandar þeim ekki kveðjurnar.
Platan hennar 21 sló rækilega í gegn og fallegir og djúpir textar snertu marga en textarnir fjalla um þegar Adele hætti með fyrrverandi kærasta sínum. Adele segir að þau hafi ákveðið sameiginlega að hætta saman og í örvæntingu sinni ákveður hún að skrifa um slitin. Hún segist eiga erfitt með að tjá tilfinningar sínar með því að tala við fólk og þetta var hennar leið að komast í gegnum sambandsslitin.
Aretha Franklin hælir Adele háttstert í tímaritinu. Hún segir að hún sé fyrsta söngkonan í langan tíma sem kemur fram síðan Carol King var og hét, konur skilji textana hennar og tengi sig við þá, Aretha segist elska að heyra ungar stelpur syngja lögin hennar.
Ekki slæmt það að fá hrós frá slíkri divu en Adele er nú söluhæsta söngkona ársins.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig