Stjarna söngkonunnar Adele heldur svo sannarlega áfram að skína skært en Adele er núna stödd í Los Angeles og mun líklega dveljast þar þangað til Óskarsverðlaunahátíðinni lýkur en lagið hennar Skyfall er tilnefnt til verðlauna fyrir besta lagið.
Adele hefur sést á röltinu og að sinna erindum í Los Angeles annað hvort ein eða með litla son sinn sem hún hallar “little peanut” eða litla jarðhneta.
Adele var spurð á rauða dreglinum á Golden Globe hvað hann héti en hún sagði að hún væri alls ekki tilbúin að gefa það upp, það væri hennar einkamál. Sonur hennar fæddist í október síðastliðinn og hafa engar myndir náðst af honum en Adele er afar annt um einkalíf sitt og gerir allt sem í hennar valdi stendur til að halda lífi sínu utan sviðsljóssins.
Adele átti son sinn tveimur vikum fyrir frumsýningu Skyfall þannig að hún komst ekki á neinar frumsýningar fyrir myndina og hún var kasólétt þegar hún skrifaði og tók lagið upp, henni fannst afar leiðinlegt að hafa ekki komist á frumsýningarnar en segir þó að sonur hennar sé mikilvægari en glysinn og glamúrinn.
Adele hefur látið sér líða vel undanfarið í LA og hafa nokkrir frægir sent henni og syni hennar gjafir þar á meðal Jessica Alba en hún sendi Adele og litlu hnetunni hennar gjafakörfu með bleium, kremum og allskonar barnadóti
… en þegar hún ætlaði að skrifa nafn hnetunnar á kortið þá gat hún ekkert skrifað þar sem að enginn vildi gefa upp nafn hans.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig