Þær fréttir að Adele sé orðin mamma í fyrsta sinn ganga fjöllum hærra í slúðurheimunum í dag.
Adele hefur ekki staðfest að hún sé búin að eiga og fjölmiðlafulltrúinn hennar segir “no comment”.
Samkvæmt breskum heimildum eignaðist Adele strák í síðustu viku en söngkonan hefur alltaf farið leynt með einkalíf sitt og því kemur ekki á óvart að hún sé ekki búin að tilkynna það að hún sé búin að eiga.
Adele hefur slegið rækilega í gegn í tónlistarheiminum undandarið og nýjasta lagið hennar Skyfall (úr James Bond myndinni) trónir á toppi vinsældarlista víða um heiminn.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=7HKoqNJtMTQ[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig