Allt tiltækt lið lögreglu og sjúkraflutningamanna var kallað að heimili Playboy kanínunnar Kendru Wilkinson í vikunni þegar skyndilega leið yfir 2 ára son hennar með dularfullum hætti.
Kendra hringdi í 911 þegar drengurinn hneig skyndilega niður án sýnilegrar ástæðu kl 17 síðdegis og þegar lögreglan mætti á svæðið byrjaði sá litli að ranka við sér en hann heitir Hank Baskett IV (fjórði).
Drengnum var hraðað á nærliggjandi spítala þar sem hann hresstist fljótt en þá hafði hreinlega liðið yfir hann af því hann ofhitnaði. Þetta er víst nokkuð algengt með börn því þau hamast án afláts, gleyma að drekka og þá getur svo farið að það hreinlega líði yfir þau.
Þessi saga fékk því farsælan endi… vonum bara að Hank Fjórði passi sig að drekka nóg af vatni.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.