Aumingjans Lindsay Lohan var einu sinni leikkona en er núna einhverskonar slúðurstjarna.
Hún er samt alltaf að vonast til að fá breik í bíómyndunum en svo virðist vera að í hvert sinn sem eitthvað er alveg að fara að gerast hjá henni, þá klúðrast það aftur. Annaðhvort dettur hún í það eða er kærð fyrir eitthvað.
Að sögn slúðurpressunnar í BNA er mamma hennar, Dina Lohan, líka einna erfiðust viðureignar en Dina er einhverskonar umboðsmaður dóttur sinnar og gerir fáránlegar kröfur í hvert sinn sem tilboð um hlutverk kemur á borð til þeirra. Nú síðast var uppi orðrómur um að hinn virti leikstjóri Steven Sotherberg hefði hug á henni í hlutverk kærustu karlstrippara í myndinni Magic Mike en mamma Lindsay skemmdi allt.
Hlutverkið hefði verið rosalegt kombakk fyrir Linsday sem hefur nú lítið annað að gera en að leika í kjánalegum auglýsingum eins og þessari hér:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=pds0fOiKs1U&feature=player_embedded[/youtube]Hér eru svo nokkrar myndir af stelpunni frá í gær…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.