Já Holly Madison er komin í bikinífom og af því tilefni vill hún ganga með fleiri börn aftur, aftur og jafnvel oftar!
Holly segist vilja eiga þrjú börn í röð, bíða síðan í nokkur ár og skella síðan aftur í önnur þrjú. Hana langar að vera mamman með mörgu börnin því það hljóti að vera hrikalega skemmtilegt og æðislegt! Holly segir þó að næsta barn komi kannski ekki alveg strax en segir ‘aldrei að segja aldrei’ og kannski kemur bara annað barn “óvart” undir á næstunni.
Jahá! Hvað ætli að Holly segi þegar hún er komin með þrjú börn? Ætli að hún vilji fleiri eftir það? Kannski, hún er nú eins og allir hinir frægu með barnapíur og aðstoðarfólk alveg vinstri og hægri.
Og ætti maður kannski að fara að spýta í lófana? Nei ég held ég láti mína tvo duga! 😉
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig