Holly Madison er stolt mamma en hún eignaðist litla stelpu þann fimmta mars síðastliðinn.
Holly segir að allt sem Rainbow litla geri sé alveg dásamlegt, henni finnst öskrin í henni meira að segja krúttleg. Holly elskar að halda á henni og vera með henni öllum stundum.
Kanínan fyrrverandi segir að fæðingin hafi verið auðveld en einnig að mænudeyfingin hafi hjálpað mikið, henni fannst upplifunin að fæða vera svo frábær að hún hló og hló þegar hún var að rembast.
Rainbow er fyrsta barn Hollyar og unnusta hennar Pasquale og Holly hefur sætt mikilli gagnrýni vegna nafngiftarinnar en þá segir hún “ef það að vera strítt á nafninu sínu er það versta sem gerist fyrir hana þá tökum við á því”. Margir vilja meina að nafnið minni á stripparanafn en Holly hlær að því og lætur sér fátt um finnast.
Holly er sko meira en tilbúin að eignast fleiri börn og vill að Rainbow eigi allt af 5-6 systkini! Svo er það spurning hvað þau fá að heita blessuð.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig