Raunveruleikastjarnan og Peep Show dansarinn Holly Madison eignaðist litla stúlku þann 5.mars síðastliðinn og hefur gefið stúlkunni sinni afar sérstakt nafn.
Daman heitir Rainbow Aurora Rotella eða á góðri íslenskri þýðingu- Regnbogi! Jahá, Holly vildi gefa dóttir sinni sértakt og fallegt nafn.
Þegar hún var krakki átti hún bekkjarsystur sem hét Rainbow og hún öfundaði hana alltaf af því nafni svo úr varð að Holly ákvað því að skíra stúlkuna sína eftir henni. Rainbow var alltaf hress og skemmtileg stelpa sem var vinur allra en Holly vonar að dóttir sín verði ekki fyrir aðkasti fyrir að bera sérstakt nafn. Hún ætlar að ala hana upp sem sterka unga konu sem getur svarað fyrir sig.
Holly er reyndar ekki ein um skríngilegheitin þegar kemur að sérstökum nöfnum í glysborginni því það virðist hreinlega vera í tísku að hafa nöfnin öðruvísi! Sumir hafa skírt börnin sín eftir ávöxtum og aðrir eftir ofurhetjum.
Holly og barni heilsast vel en hún tilkynnti ekki fyrir svo löngu að hún ætlaði að láta breyta fylgjunni í töflur og taka þær inn! Holly hefur heyrt að þannig jafni maður sig fyrr eftir fæðinguna og hún stefnir að því að jafna sig mjög fljótt svo hún geti haldið áfram að taka þátt í sýningunni sinni í Las Vegas.
January Jones gerði þetta einnig og hún dásamaði fylgjupillurnar sínar og mælir með því að allar mömmur geri slíkt hið sama!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig