Sumarið er líka komið í HM (ekki fótbolta…) og fyrir þær sem eru svo heppnar að vera fara út í sumar þá er hér myndaþáttur af yndislegum og ódýrum sumarfatnaði þeirra.
Og fyrir okkur hinar þá mæli ég með að panta H&M á netinu og láta senda til vina eða ættingja úti sem kemur því til manns. Hagstæðast er að panta á sænska vefnum ef þið þekkið til í Svíþjóð (sænsk króna 16-17 ISK) og það er akkúrat það sem ég ætla að gera! Nú er bara að velja sér eitthvað af þessum geggjuðu outfittum. Kjólarnir eru á 850,- til 5000,- kr ÍSK!!
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.