Hér kemur loksins svarið fyrir mömmur og pabba sem er bæði umhugað um umhverfið og vilja halda sér í góðu formi!!
Barnavagn og reiðhjól í sama settinu -frábær leið til að spara bensínkostnað og líka góð skemmtun fyrir mömmuna, pabbann og börnin. Þá er bara að hjóla í mollið og kaupa sér fallega kápu í staðinn fyrir aurin sem hefði farið í bensínkostnað. Það má samt ekki gleyma hjálmunum!
“Taga” kallast herlegheitin en grindin er úr áli og er með shimano gírakerfi. Græjan vegur 20-29 kg og hægt að velja um fjóra liti en hjólavagninn er hollensk hönnun.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.