Mér fannst lýsingin hár og förðunin á þessum ljósmyndum afar kvenleg og falleg. Myndirnar voru teknar (í Malibu) af óskarsleikkonunni Hilary Swank fyrir bandaríska september tískutímaritið Instyle 2010 og breska Instyle í jan 2011.
Ljósmyndarinn er Michelangelo Di Battista.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.