Jay Z er búinn að sannfæra mig um að hann hefur ekki bara góðan smekk á konum heldur líka á ilmum, því nýi rakspírinn frá honum, Jay Z gold, er dásamlegur.
Í mínum augum verða karlmenn alltaf aðeins meira aðlaðandi ef þeir eru vel lyktandi
Mér finnst lyktin ÆÐI! Algjört ÆÐI!
Hún er seiðandi, sexý, frískandi og ekki of krydduð.
Bláber, kardimomma, lavender og greip einkenna ilminn og gera hann því léttan og hressandi. Hann virkar vel sem hversdags ilmur og fyrir fínni tilefni.
Rakspírinn kemur í fallegri hvítri mattri flösku og á tappanum eru áletruð hvatningar orð frá meistara Jay Z.
Lyktin endist út allan daginn með því að nota það trikk að beina bununni að slagæðum, 2x á hálsi og 1x úlnlið.
Ég held bara að þetta sé nýji uppáhalds karlmanns ilmurinn minn enda er ég með nefið ofan í manninum mínum allann daginn núna. Hann heppinn!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=IRE_k1Dd3QM[/youtube]
Krabbastelpan Eva Rós er fædd árið 1989, á tvö börn og góðan mann. Eva er mikill áhugamaður um hverskyns gamanmál en einnig uppeldi, ferðalög, heilsu, líkamsrækt, vín, matreiðslu, veisluhöld, kokteilagerð og góða þjónustu. Mottó Evu í lífinu er einfalt: Hver er sinnar gæfu smiður