Cool Water rakpírinn frá Davidoff hefur verið á markaðnum frá því árið 1988 eða í 25 ár og er meðal söluhæstu rakspíra í heiminum!
Það má eiginlega segja að rakspírinn sé tímalaus og ungir sem aldnir nota hann. Þessi rakspíri minnir mig alltaf á æskuna þar sem pabbi byrjaði að nota hann þegar ég var ung og notar hann ennþá.
Mér finnst þessi lykt tilheyra honum en margir karlmenn halda sig við sömu lyktina í mörg ár því þeim líkar vel við hana og hún hentar húðinni þeirra eftir rakstur.
Rakspírinn fær innblástur sinn í fagurblátt djúpt hafið, heitt sumarið og blómin. Það er mikið af andstæðum í rakpíranum en hann er bæði ferskur og samtímis þungur eða karlmannlegur. Áberandi ilmhrif eru: Appelsína, mynta, Jasmína, Musk og Rósmarý.
Andlit ilmsins er leikarinn laglegi Josh Holloway og hér að neðan má sjá myndband af auglýsingunni fyrir rakspírann:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=hB4wiadGLLs[/youtube]
__________________________________________________________________
Frábær rakspíri sem ég mæli með hvort sem þú ert átján ára eða sextugur kappi…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig