Ég hef alltaf verið hrifin af snyrtivörunum frá Yves Saint Laurent og hef notað bæði förðunarvörur og ilmi frá þeim í gegnum tíðina…
…Nú á dögunum kynntist ég nýjum herrailmi frá þeim sem fer beinustu leið í jólapakkann!
Þessi ilmur heitir La Nuit de l’Homme Frozen Cologne og kemur í súpertöff glasi sem myndi sóma sér vel uppi á hvaða hillu sem er.
Þessi ilmur finnst mér vera frekar kryddaður og léttur. Hann einkennist af Bergamont appelsínunni, sítrónu og mandarínu. Svo er það svartur pipar og Geranium plantan sem gefur ilminum smá ‘kikk’!
Karlmannlegur og flottur ilmur- fullkomin gjöf fyrir kærasta, pabba eða góðan vin!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.