Calvin Klein er þekktur fyrir sín góðu ilmvötn, bæði fyrir konur og karla. Encounter ilmvatnið fyrir karlmenn er algjörlega að slá í gegn erlendis en það er enginn annar en Alexander Skarsgård aðalleikari True Blood sem kynnir þennan góða ilm fyrir Calvin Klein.
Ilmurinn er mjög kraftmikill og inniheldur bæði milt koníak, romm, kardimommur, pipar, jasmín, mandarínur og við. Ilmurinn er sérstaklega gerður fyrir nútímamanninn, þennan sem er alltaf á ferðinni.
Viðskipta jafnt sem íþróttamanninn því ilmurinn er ferskur, kryddaður og dregur upp hina karlmannlegu ímynd.
Sjúklega góður ilmur sem dregur fram hið dulúðlega, karlmannlega og leyndardómsfulla í þínum heittelskaða.
Hér má sjá myndband af Alexander Akarsgard og súpermótelinu Lara Stone kynna Encounter… margir segja að hugmyndin að markaðssetningu ilmsins sé sótt til 50 Shades of Grey.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=8zPEK5a0xKU[/youtube]
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.